YOGABLISSS er vellíðan sem fylgir því að stunda yoga Allt Það besta býr innra með okkur Þegar árreitið er mikið þá erfitt að heyra í sjálfum sér. Með yoga kyrrum við hugann og hægjum á ölduganginum innra með okkur. Í yoga erum við hér og nú. Besta leiðin til þess að komast þangað er að elta andardráttinn. Yoga þýðir sameining á einstaklingssálinni og alheimssálinni. Með athygli okkar á einn andardrátt í einu komumst við nær þessari sameiningu. Yoga er fyrir alla Ferðalagið snýst um vellíðan. Við aðlögum eftir aðstæðum og einbeitum okkur að því hvernig okkur líður í stöðunum. Friðurinn er þar sem að við mætum okkur sjálfum án þess að dæma og greina.Við byrjum öll einhvers staðar. Fyrsta skrefið gæti verið að finna yogatíma í nágrenninu eða hreinlega á netinu.Gefumst ekki upp þó fyrsti tíminn hitti ekki beint í mark, prófum aftur.Það geta allir fundið yoga við sitt hæfi, óháð aldri og líkamlegri getu.