Því miður er fullt á öll námskeið tímabilið 29.okt - 18.des.

irisyogablisss

Yoga hjá GoMove Iceland

6 og 8 vikna námskeið í æfingarstöð GoMove Iceland á Hafnarbraut 9a, Kársnesi.

Tímarnir eru á mán,- þrið,- eða miðvikudagskvöldum kl. 20:00. 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á mýkt og skapað rými fyrir djúpa slökun einu sinni í viku, 75 mínútur í senn að kvöldi til.

Hver tími byrjar á hugleiðslu og öndun. Yin Yoga er notað til að róa hugann, losa um spennu í líkamanum og komast í slökunarástand.

Í lok hvers tíma er svo gefið alveg eftir með aðstoð Yoga Nidra.

Yin yoga

Í yin yoga er sefkerfi líkamans virkjað með djúpri öndun og mjúkum yogastöðum.

Stöðurnar eru sitjandi, krjúpandi og liggjandi. Við vinnum með bandvef og liðamót og losum um uppsafnaða spennu. Við stöldrum við í hverri stöðu og gefum eftir með hjálp öndunar. 

Yin yoga er frábær leið til þess að taka eftir huganum og taugakerfinu og æfa sig í því að finna kyrrðina. 

yin

Yoga nidra

Yoga Nidra er aldagömul aðferð til að gefa líkama og sál frið til heilunar.

Yoga Nidra er liggjandi, leidd hugleiðsla sem stundum er kallað ‘’yogic sleep’’. Þar gefst tækifæri til að kyrra taugakerfið og losa um streitu. 

yoga

Umsagnir frá iðkendum:

„Ég er búin að vera hjá Írisi í jógatímum og guð minn góður hvað ég mæli með þeim, þetta er svo notalegt fyrir líkama og sál.“

„Ég hef ekki sofið svona vel lengi og tengi það við kvöld jógað.“

„Róaði mig niður en var líka smá krefjandi. Þetta eru tímar sem ég þarf klárlega á að halda í mitt líf núna..“

„Þetta var erfiðara en ég bjóst við. Umgjörðin og andrúmsloftið var mjög afslappað og þægilegt. Ég svaf eins og steinn í nótt og líður vel núna, greinilega teygt og snúið upp á hluti sem kominn var tími á.“

„Íris hefur einstaka nærveru og jógatímarnir voru fjölbreyttir og allir frábærir.“